....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, september 15

Mér finnast vekjaraklukkur vera mestu dónar í heiminum. Manni getur ekki einu sinni dreymt í friði í miðdegisblundinum fyrir þeim!! Ég veit ekki hver ól þær upp, en það var sko ekki ég!

Annars var ég að velta því fyrir mér hvert skordýrin fara á veturna? Ekki leggja þau öll egg sem eru í dvala yfir veturinn?? Mér þykir þetta ákaflega forvitnileg spurning.......

Svo var ég líka að velta því fyrir mér í hverju ég á að vera á föstudaginn, þegar ég fer að djamma (vúhú)..........

En já, eins og augljóst er, ekki mikið um heimspekilegar pælingar í dag, svo ég kveð með söknuð í hjarta :)


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home