Nú er sumarið opinberlega búið og því er komin tími til þess að finna nýtt vetrarútlit á bloggið. Með þeim fyrirvara þó að ég nenni að breyta. Ég er samt búin að ákveða að næsta sumar verða notaðir litirnir limegrænn og gulur, en það verður þá.
Í gær kenndi ég Pálu stærðfræði, ég er geðveikt stolt því ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að ég væri kennari dauðans. Reyndar var þetta ekkert alvarlegt sem stúlkan þurfti að kljást við heldur bara smáatriði sem bókinni láðist að nefna... En því var kippt í liðinn :)
En apart from that þá er mig búið að dreyma og dreyma og dreyma og dreyma og ....
Svo mikið að ég nenni ekki einu sinni að segja frá því! En það voru endajaxlar í einum þeirra.
Ég þarf að fara að ná aftur upp æfingunni minni í að muna drauma í smáatriðum, starting today.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home