Þetta hlýtur að vera ástæðan fyrir því að alnæmissmitum fer fækkandi... :s
Kaþólska kirkjan berst á móti útbreiðslu alnæmis
Um sex þúsund manns á aldrinum 15 til 24 ára smitast af HIV-veirunni á degi hverjum. Er útbreiðsla alnæmis mest í Afríku en talið er að sjúkdómurinn hafi þegar dregið 20 milljónir manna til dauða í veröldinni. Sérfræðingar í heilbrigðismálum hvetja til þess að fólk noti smokkinn til að verjast HIV-smiti og ýmsum öðrum kynsjúkdómum.
"AIDS-veiran er um það bil 450 sinnum minni en sáðfruma," segir Alfonso Lopez, einn af áhrifamestu kardínálum Páfagarðs, í viðtali við Panorama. "Sáðfruman getur auðveldlega sloppið í gegnum "net" sem er á smokknum," segir hann ennfremur. Gefur Lopez í skyn í viðtalinu að hann telji að ríkisstjórnir landa heims eigi að hvetja fólk til að nota ekki smokka.
Erkibiskupinn í Nairobi í Kenýa, Raphael Ndingi Nzeki, fullyrðir jafnvel í viðtali við Panorama að notkun smokka hjálpi til við að dreifa veirunni milli manna. "AIDS...hefur breiðst svo hratt út vegna þess hversu auðvelt er að nálgast smokka".
Gordon Wambi, sem stýrir átaki gegn útbreiðslu alnæmis í Afríku, segir ennfremur að sumir presta haldi því að fólki að smokkar séu smurðir HIV-veirunni.
Catherine Hankins, vísindaráðgjafi hjá UNAIDS, þeirri stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst eingöngu gegn útbreiðslu alnæmis, fordæmdi staðhæfingar sumra embættismanna kaþólsku kirkjunnar. Sagði hún í samtali við fréttasíðu BBC að staðhæfingarnar væru algerlega rangar, smokkar kæmu sannanlega í veg fyrir að menn smituðust af HIV-veirunni.
(Tekið úr mogganum október 2003)
Það er frábært að kaþólska kirkjan skuli leggja sitt af mörkum við að berjast á móti útbreiðslu alnæmis.
Cave (tekið af vantrú.net)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home