....Lyfleysan....

bull og vitleysa

fimmtudagur, október 28

Hvað er það við orðið EINKAREKINN sem fólk skilur ekki? Í mogganum í dag var grein eftir einhvern ungann sjálfstæðismann það sem hann er að væla yfir því að EINKAREKNIR skólar í Reykjavík séu allir að fara á hausinn vegna þess að R-listinn láti þá ekki hafa jafn mikinn pening og hina skólana. Síðast þegar ég vissi létu einkareknir skólar nemendur sina (eða réttara sagt foreldra þeirra) borga himinhá skólagjöld fyrir að fá að læra allveg sama námsefni og aumingjarnir í ríkisreknu skólunum. Svo AF HVERJU ættu þeir að vera að fá sama fjármagn og hinir? Til þess að börn ríku foreldranna geti haft betri kennara og betri aðstöðu til þess að iðka sitt nám? Í ínum augum er þetta bara val sem fólk hefur, og ef einkareknu skólarnir þurfa að hækka skólagjöldin sín til þess að standa undir rekstri, þá geri þeir það bara.
Hins vegar er allt annað upp á teningnum þegar kemur að skólum sem ríkið á að sjá um. Þá fá bara allir jafn mikinn pening allveg sama hversu há skólagjöld eru höfð. Sem dæmi ná nefna HÍ og HR. Við háksóla íslands snýst allt um peninga. Og þá meina ALLT. Læknanemarnir sem ekki komust inn og eru ennþá tilvonandi eru litnir hornauga í efnafræðiskori, vegna þess að þeir taka peninga frá okkur. Það er hálfpartinn búið að loka þjóðarbókhlöðunni vegna þess að það er ekki til peningur til þess að reka hana, og nemendur verða bara að éta það sem úti frýs. Og ekki fáum við KRÓNU frá ráðamönnum þjóðarinnar, vegna þess að þeim finnst mikilvægara að styrkja stríðsrekstur annarra þjóða. HR hinsvegar fær jafn mikinn pening á hvern nemanda, auk þess að rukka hvern nemanda um 180.000 krónur á ári.
Helvítis. Ég þarf að fara að gera eðlisefnafræðiskýrslu. Tjái mig kannski meira á eftir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home