Í nótt dreymdi mig SKAMMTAFRÆÐI. Það er ekki gaman að dreyma skammtafræði. Ég var búin að úthluta öllum einhverju n og svo var ég á fullu að reikna samkvæmt jöfnu fyrir orkubil milli orkuþrepa í atómi. Þegar ég er þreyttur, vill sofa og er búin að vera að reikna skammtafræðiheimadæmi í marga daga þá kæri ég mig ekki um að dreyma óskapnaðinn. Þetta var næstum jafn slæmt og þegar mig dreymdi efnafræðipróf þar sem ég mundi ekki neitt og gat þar að auki ekki skrifað. Bú!
Svo er ég að fara að versla mér tölvu við fyrsta tækifæri, geðvekt flottan makka (sem kostar óggislega marga péninga). Ég er spenntur :)
Annars er ég að drukkna í upptekni, hangi oft á tíðum upp í skóla fram á kvöld, og jafnvel fram á nótt á föstudagskvöldum; þrjú próf framundan á næstu tveimur vikum auk skýrslna og heimadæma.
Það ættu samt að vera tímar lausir í jólafríinu fyrir áhugasama ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home