....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, nóvember 10

America's next top model viðvörun. Þeir sem vilja ekki vita úrslitin (þ.e.a.s. gildir um þá sem þekkja mína skoðun á málinu) ættu ekki að lesa lengra í bili.
Allavega, ég er fúl. Bara alls ekki sátt! Gæti þó verið ósátttari en..... Ég er ósátt!
Þessi sem vann, skilgreinum hana sem X (hún er einingalaus Raggi), mér finnst hún bara ekkert spes. Myndarleg stúlka og mjög fríð sýnum, hún má nú eiga það, en það er eitthvað ordinary við hana. En hún er lang heilsteyptust af þeim sem eftir eru, ég fer ekki í grafgötur með það, hinar tvær hefðu eflaust verið tættar niðrí svaðið fljótlega í hörðum heimi módelbransans. Það er eflaust það sem réð úrslitum milli X og stúlkunnar sem ég hélt með, köllum hana Y (líka einingalaus). En Y mun ná langt, mjöööööööög langt skal ég ykkur segja........
Næsti þáttur er eftir 40 mínútur, og þar munu eiga sér stað krassandi senur og æsispennandi hlutir. Fylgist með.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home