....Lyfleysan....

bull og vitleysa

laugardagur, nóvember 20

Í dag ætla ég að ræða skattalækkanir ríkisins. Það er voðalega góð hugmynd að lækka skatta, sérstaklega núna þegar efnahagurinn er í "uppnámi" vegna launahækkunnar kennara. En burtséð frá því, þá skyldi maður ætla að allir vilji skattalækkanir, vúhú! Ég ætla þá að lýsa því yfir hér með að ég er alfarið á móti svoleiðis starfsemi. Nú er fólk almennt eflaust mjög hissa: "ekki lækka skatta, hví þá?"
Þéss vegna ætla ég að taka dæmi máli mínu til stuðnings:
Jón og Gunna eru systkin, en Jón hefur alltaf verið lukkulegri en Gunna. Nú þegar þau eru að nálgast fimmtugt eiga þau bæði maka á atvinnuleysisbótum og tvö börn. Jón starfar sem forstjóri hjá virtu fyrirtæki, og er með forstjóralaun, og við gerum ráð fyrir að hann borgi 3.000.000 í skatta á ári. Gunna er hins vegar að vinna á Grund við ummönnun aldraðra, og er að borga 700.000 krónur í skatt á ári. Svo gefur ríkið öllum 4% skattalækkun. Jón græðir á því 120.000 krónur á ársgrundvelli, eða 10.000 krónur á mánuði. Hann og konan hans ákveða að fara út að borða á Tapas í hverjum mánuði fyrir peninginn. Gunna hinsvegar græðir 28.000 yfir árið, eða 2300 á mánuði. Hún ver þessum pening í mjólk út á cheerios barnanna sinna.
Reyndar vegur aðeins upp á móti að barnabætur hækkuðu, en þær eru tekjutendar. Það ætti þó aðeins að skila sárafáum þúsundköllum í tóma vasa...

Væri ekki nær lagi að hækka skattleysismörk, og innleiða þrepakerfi í skattlagningu tekna?? Ekki veit ég hvað er að gerast í höfðum ríkisstjórnarmanna, en það er eitthvað undarlegt.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home