Áðan fór ég og keypti nýjan ryksugufisk í fiskabúrið, þar sem það leit út fyrir að gamla ryksugan væri ekki að höndla þetta ein. Reyndar sýnist mér hún vera farin að slæpast töluvert en hver veit.... Ég er ekki ennþá búin að gefa dýrinu formlega nafn en það kemur í ljós með tíð og tíma hvaða heiti það mun bera. Annars er ég að spá í að halda áfram að lesa undir þetta blessaða próf sem ég er víst að fara í á föstudaginn, þar sem ég svaf óvart í allan dag :s

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home