Ég er að fara í bíó.... Í bíó á the grudge.... Þannig að ef fólk hefur eitthvað við mig að segja, hringið þá fyrir 10, því hvort ég verð ennþá við geðheilsu eftir það er ekki vitað.... Annars er bíófélaginn búinn að fórna öllum útlimum mér til handa ef þurfa þykir, svo ég ætti að vera örugg.... Verst að þessi sami bíófélagi er vís til þess að nota hvert tækifæri til að bregða mér út mánuðinn svo maður veit ekki :)
Mig er aftur byrjað að dreyma! Ég er svo glaður :D Mig hefur reyndar ekki dreymt neitt spennandi og frásagnarvert en guð hvað mig hefur dreymt mikið!! Dreymdi að ég var að passa Ronju og hún gat talað og allskonar. Mikið stuð.
En jæja, best að halda áfram að lesa Eðlisefnafræðina, svo ég geti nú skilað almennilegum heimadæmum til tilbreytingar þessa vikuna. Ég tjái mig samt um kennaraverkfallið við tækifæri, þannig að fólk þarf ekki að óttast neitt...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home