Hvað er eiginlega AÐ heiminum í dag?? Ég hef fimm atriði sem ég ætla formlega að bölsótast yfir:
- Pála hringdi í mig í dag til að segja mér að hún væri hætt í skólanum. Af hverju? Vegna þess að skólayfirvöld ákváðu að fella hana á önninni vegna þess að hún var ekki með nógu margar einingar. Þær eru 12 (þegar ég var í MH var félagi minn með 8, ég man ekki til þess að það hafi verið vandamál). Ekki var tekið tillit til þess að hún sótti um mikið fleiri EN ÞAÐ VAR EKKI HÆGT AÐ SETJA MEIRA INN Í TÖFLU. Hún eyddi semsagt fystu vikum skólaársins í að standa í stappi við skólayfirvöld til að fá fleiri einingar. í dag virðist þetta ekki skipta neinu máli, því reglur eru reglur (af hverju var ekki gerð grein fyrir þeim strax??). Hún reyndar má ná ef hún fær hærra en 7 í öllu, en hún ákvað frekar bara að sleppa þessu. Nei, það er ekki verið að hjálpa einstæðum mæðrum að ná sér í menntun til þess að geta séð sér og sínum bornum fyrir farborða. Iðnskólinn í Reykjavík er skítaskóli.
- Ljóst er að spilling veður uppi í þjóðfélaginu í dag. Og ég skal sko gefa á mér stóru tána ef borgarstjórinn segir af sér. Tilhugsunin um að svoleiðis myndi gerast á Íslandi lætur mig næstum hlægja.
- Ég hef ákveðið að hætta við að verða efnafræðingur og reyna frekar að finna leiðir til þess að koma mér og félögum mínum af þessarri plánetu. Ég er búin að stinga upp á þessu við úrvalslið nokkurra samnemenda minna og þeim leist vel á. Ég bara NEITA að búa í innan við 8000 km radíus við fólk sem kýs Bush. Auk þess sem ég vil ekki að börnin mín alist upp í herveldi. Verð bara að muna að taka með mér myndarlega karlmenn góða til undaneldis.
- Harpi systir er hætt að læra fyrir prófin tvö sem hún er að fara í á morgun því Elsa er komin í heimsókn. Þori að veðja að hún fær samt hátt, helvítið á henni.
- Ég ætlaði að leggja mig áðan í þrjú korter. Ég vaknaði eftir meira svona þrjá tíma. Ég er vel sofin en á ennþá eftir að gera heimadæmin sem ég á að skila á morgun og heimadæmin sem ég átti að skila í dag. Ég samt hef þá afsökun að ég var að gera skýrslu til 3 í nótt, og því er þreyta mín af eðlilegum orsökum.
Svo hef ég einnig nokkur atriði að gleðjast yfir:
- Það er eldgos. Reyndar hef ég ekki orðið vör við eld og eimyrju, hraunflæði og súrt regn, og algjöra ringulreið. Sem er soldið fúlt, ég hef verið að bíða eftir þannig eldgosi lengi. Það er samt farið að rigna ösku í útlandinu, sem er bót í máli, og í nótt fann ég megna brennisteinslykt.
- Ég fæ 20 daga jólafrí !! Ví !!
Af þessu sést að heimurinn er vondur og honum fer hríðversnandi. Kannski einhver ætti að taka sig til og gefa honum inflúensusprautu??

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home