Okey, gefum okkur að ég sé ráðsett húsmóðir og að ég eigi lítið sætt bláeygt barn á leikskólaaldri. Og að ég færi með barnið mitt samviskusamlega í leikskólann á hverjum degi, grunlaus um hvað fer þar fram. Já, ég sagði grunlaus um hvað fer þar fram. Og hvað ætli sé það sem fer fram bak við luktar dyr leikskólans? Kristniboð, hvorki meira né minna. Já kæru lesendur, prestar eru farnir að sækja í börnin okkar strax á aldrinum 2-5 ára, þegar þau eru að sjálfsögðu allveg gersamlega gersneydd öllu sem kallast sjálfstæð hugsun og þess vegna varnarlaus fyrir árásum fólks sem vill innprenta í þau hinni og þessarri hugmyndafræði. Leikskólar og aðrar opinberar stofnanir ættu að sjálfsögðu að vera lausar við hlutdrægni í öllum málum, hvort sem það er pólitík, trúmál eða öll önnur þjóðfélagsleg álitamál.
Einnig hef ég heyrt því fleygt að fóstrurnar fari með börnin í krikju. Ekki þykir mér það skárra. Ef ég kýs að ala mitt litla sæta bláeygða barn upp sem kristinn einstakling þá er ég fullfær um að ræða við það sjálf, fara með það sjálf í kirkju og sunnudagaskóla, og innprenta sjálf í það alla þá hugmyndafræði sem ég við að barnið alist upp við. Það er EKKI hlutverk leikskóla eða skóla.
Talandi um skóla, ég ætla að segja sögu lítils drengs sem var með systur minni í bekk hérna forðum daga þegar kristnifræði var kennd í Garðaskóla. Þannig var það alltaf að umrætt fag var kennt af presti, og var, eins og nafnið gefur til kynna, KRISTNIfræði. Og í þessu fagi voru börnin látin læra bænir, látin taka próf úr drasli sem tengdist kristninni og læra trúarjátninguna. Ég minnist þess skýrt og greinilega að hafa þurft að fara til prestsins og þylja upp fyrir hann trúarjátninguna, þrátt fyrir að það hafi legið ljóst fyrir að ég var ekki að fara að fermast. En allavega, þessi drengur var gyðingur. Hann var látinn fara með trúarjátninguna, grátandi. Ef þetta er myndin sem prestar og aðrir kristnir vilja að börnin sjái, þá er það fine by me. Ég myndi ekki vilja að mín trúarbrögð yrðu sýnd í þessu ljósi. Ég hef líka sjaldan séð systur mína jafn reiða og þegar hún kom heim þennan dag....
Ég veit að það eru eflaust margir ósammála mér í þessarri umræðu, ímyndið ykkur þá þetta:
Það kemur múslimaklerkur á leikskóla barnanna ykkar og fer að kenna þeim um Allah og Islam. Ekki myndi það vekja milka lukku í þjóðfélaginu, en hver er munurinn?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home