....Lyfleysan....

bull og vitleysa

föstudagur, desember 24

Lesendur vonandi afsaka hvað lítið hefur verið bloggað undanfarna daga, ég er búin að vera þunn, og svo þurfti ég að kaupa þrjár surprise jólagjafir á þorláksmessu :)

Allavega, ég er búin að fá:
  1. Myndavélina mína frá mömmu og pabba. Ég er reyndar löngu búin að fá hana og hún er líka ammælisgjöf. Svo fékk ég svona "heimaföt" að auki.
  2. Trefil og húfu frá börnunum á heimilinu. Hentugt þar sem ég var búin að plana að prjóna mér húfu í fríinu :)
  3. Einhvurskonar baðkúlur frá Anitu. Nú get ég farið að lykta vel við sérstök tækifæri :þ
  4. Natural born killers UNCUT frá Ragga. Ég held að ég hafi örugglega hoppað hæð mína í loft upp í fullum herklæðum! Ég má samt ekki horfa á hana í kvöld, mamma vill það ekki :(
  5. Best of Bizarre frá Pálu, Rúnari og Ronju. Fyrir þá sem ekki vita er Bizarre tímarit sem gefið var út á árunum 1946-1961 af John Willie, og sérhæfði síg í bondage fetish, sérstaklega korsettum og hálum hælum. Þetta er feit bók....
  6. Svo fékk ég The princess bride frá Elínu, sem segir frá Buttercup, fallegustu stúlku í heiminum. Ég les hana þegar ég er búin með Hard-boiled wonderland at the end of the world.
  7. Svo fæ ég gjöf frá Ingibjörgu frænku á morgun og afa og ömmu.
  8. Svo við tækifæri fer ég að kaupa allar jólagjafirnar frá mér til mín, það er Sandman serían, nýja Murakami bókin sem kemur ekki út fyrr en í janúar, föt föt föt föt föt skór skór föt skór föt og föt.

Þetta eru sem sagt búin að vera ágæt jól, ég borðaði svo mikið yfir mig að ég gat ekki einu sinni etið ísinn í eftirmat (en ég geng í það strax við tækifæri). Svo er það bara jólaboðahelvítið á morgun og djeeeeemmmmmm á annan. Svo er ég lögst í lestur og gítaræfingar víst líka :)

Gleðileg jól og hafiði það gott rúsínubollur !

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home