....Lyfleysan....

bull og vitleysa

fimmtudagur, janúar 13

Eitt sem ég skil ekki. Hvernig í ósköpunum dettur þessu álversfólki í hug að álverið þurfi ekki að fara í umhverfismat eins og önnur fyrirtæki? Það er ekki eins og svona lög séu sett til þess að gefa undanþágur frá þeim þegar um stóriðjur er að ræða...
Og að kæra þetta til hæðstaréttar.... kommon.

En að skemmtilegri málum, ég er með fyndnasta kennara í heimi. Að horfa á hann og hlusta á hann er eins og að horfa á vídeospólu á fastforward. Og ef maður blikkar augunum þá missir maður þráðinn, og þegar hann kemst í gírinn þá fer hann að tala um undarlega hluti eins og reykingar á tilraunastofum (vond hugmynd) og ég veit ekki hvað. Allt á fast forward. Ég hef allavega aldrei hlegið jafn mikið hjá einum kennara og þessum :)

Svo er reyndar ein saga af henni systur minni sem ég ætlaði að koma á framfæri, en hún er kóperuð annarsstaðar frá þennig að það er ekki ég sem er í tíma með henni heldur Elsa frænka:
Í félagsfræði í dag vorum við eitthvað að tala um royalisma á Íslandi og það var einn strákur á því að við ættum bara að fá þarna prinsinn sem var að skilja við konuna sína um daginn til Íslands til þess að verða kóngur. Svo átti hann bara að giftast dóttur hans Dabba eða eitthvað. Þá kemur Harpa með mjög gott innskot: "EÐA BARA MÉR". ég og Tinna sátum við hliðinaá henni og við hlógum ekkert smá mikið.... Harpa hefur s.s. hér með lýst því yfir að hún ætli að vera fyrsta drottningin á Íslandi!!!!!

Þeir sem þekkja til barnsins geta eflaust séð það fyrir sér að þetta hefur ekki verið útpælt komment heldur hefur hún óvart sagt þetta upphátt því henni var svo mikið niðri fyrir við það að fatta að hún gæti verið drottning... Hún er ágæt :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home