Lenti í bráðri lífshættu í verklegu í gær, nánar tiltekið lífrænir fasar og leysar gosi. Maður ætti kannski að fá sér tryggingu gegn því að breytast í grænt slím..... Fyrir fáfróða felst í orðinu lífrænn leysir að leysa upp lífræn efni, þar á meðal þau efni sem maðurinn er búin til úr. Þetta leysagos ætti að kenna ónefndum aðilum að vera ekki að þræta við mig þegar ég loka stinkskápunum þegar það er verið að sjóða, og aðhafast e-ð þess háttar.
Svo fyrir forvitna sem ekki skilja hvað ég geri í skólanum þá er ég í "CSI" núna, ef það varpar einhverju ljósi á störf sumra efnafræðinga. Leiðinlegir fyrirlestrar - skemmtilegt verklegt :)
Annars er ég ekki búin að vera að gera neitt alla vikuna nema leggja mig tvisvar á dag og læra þess á milli. En svo fer ég í teiti á morgun, þannig að þetta stendur allt til bóta :D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home