Mmmmmmm... ég fékk besta djammmat ever á föstudaginn.... Reyndar man ég ekki hvað staðurinn heitir, en þetta er svona mexíkanskur staður eða e-ð þannig eiginlega beint á móti MR við lækjargötuna.... Sikk gott!
Annars var ég í brillijant vísindaferð á föstudaginn í álverið, var rosalega gaman (mikið að maður fær allvöru ferð ekki bara einhver helvítis líftæknifyrirtæki eða e-ð) og svo lá leið á Pravda, þar sem ég hitti Gunna frænda og Ingibjörgu kærustuna hans, og svo fórum ég, Helga, Nonni og Ómar á 22. Það var mjög fríkí, staðurinn var fullur af einhleypum og einmana karlmönnum að reyna að komast í feitt. Ástandið var það slæmt að við Helga vorum ekki einu sinni komnar á dansgólfið þegar við vorum umkringdar af einhverjum gæjum. Ótrúlega fyndið! Svo seinna kom Maggi, og svo fóru allir bara snemma heim, eða um 4 leitið.
Og í gær var ég ekkert þunnur! Ég hef reyndar ekki orðið þunnur síðan einkutímann fyrir próf, ég er afskaplega sáttur. Greinilega komin með góðar drykkjuvenjur ;)
Annars var ég að komast að því að ég á víst að skila heimadæmum á morgun, so I have plenty to read....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home