....Lyfleysan....

bull og vitleysa

fimmtudagur, apríl 14

Þetta e-mail fékk ég sent áðan. Ég er greinilega skráð á póstlista í afbrotafræði....


Sæl Þóra.
Ég er með glósur frá umræðuhópnum sem ég er í og ég sendi þér þær hér með.
Það eru nokkrir sem eiga eftir að skila, en ég mun senda þér þær glósur um
leið og ég fæ þær.

Við, í umræðuhópnum, skiptum kenningunum á milli okkar og tókum þær í
gegn. Sumir völdu að taka kennismiði eins og Travis Hirschi, ein er að
taka Edwin Sutherland, sem er mikilvægt að kunna.

Ég fékk upplýsingar um hvernig prófið var í fyrra, frá stelpu sem ég
þekki. Hún sagði að það væri mikilvægt að kunna allar töflur, þ.e. til
dæmis vita hvaða brot var algengast árið 1989. Kunna töflurnar svona
gróflega. Það var spurt um á prófinu í fyrra um Durkheim, Chicago school,
ein
nig var spurt um hvernig og hvers vegna lög breytast. Það er einnig
mikilvægt að geta tengt inn í kenningar, til dæmis hvernig íslenskur
veruleiki (úr wayward Icelanders). Tengispurningarnar hjá honum verða
líklegast þannig að maður á að tengja bækur við höfunda þeirra, t.d. Edwin
Sutherland samdi bókina White Collar crime og svo framvegis. Ég man síðan
ekkert meira sem hún sagði, en mikilvægt er að kunna mjög vel skil á
kenningunum.

Bestu kveðjur
ELísabet

E.s. Láttu mig síðan vita hvenær ég á að sýna ykkur glósurnar sem mér
áskotnuðust, frá Olgu, úr afbrotafræði. Ég bið að heilsa EInari.

Ég sendi líka glærur sem gætu nýst ykkur :O)


Ég er fegin að ég er ekki í afbrotafræði, prófin virðast fjandi skítleg...
Ég borðaði yfir mig af snjóbaunum rétt í þessu. Nú er mér ill í mallakút (samt ekki jafn illt og mér hefði orðið hefði ég hesthúsað kúfaðri skál af nammi neinei :) )

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home