Hrekkjalóminum Ester hefur tekist að bæta enn einni rósinni í hnappagatið á stórglæsilegan hátt á dögunum, með dyggri hjálp Óskars.
Það er nefnilega þannig að Hákon félagi minn er dæmakennari fyrir 1. árs verkfræðinga og er þar af leiðandi með hólf fyrir dæmin sem þau eiga að skila. Sem að sjálfsögðu býður upp á það að setja fölsuð ástarbréf og morðhótanir í hólfið. Svo á föstudaginn þar síðasta að ég held tók ég mig til og samdi eitt stykki ástarbréf, og lét fyrrnefndan Óskar skrifa:
Halló sæti maður!
Ég hef verið að fylgjast með þér í laumi í þó nokkurn tíma
og nú er svo komið að ég get ekki haft stjórn á mér lengur.
Hittu mig fyrir utan klósettin í VR-I í hadeginu á fimmtudaginn.
XXX
Nemandi
Ég hef verið að fylgjast með þér í laumi í þó nokkurn tíma
og nú er svo komið að ég get ekki haft stjórn á mér lengur.
Hittu mig fyrir utan klósettin í VR-I í hadeginu á fimmtudaginn.
XXX
Nemandi
Og svo var ég að spurja Hákon núna hvort hann hefði ekki fengið undarlegt bréf á dögunum, og hann jánkaði því, og viðurkenndi að hann hefði haldið að stelpa í bekknum hefði skrifað það! Skriftin var víst allveg eins :)
Svo ætla ég að benda á merkilega grein í Mogganum í dag í innsendu greinunum sem heitir Stríðið í landinu helga eða e-ð þannig. Ég ætla ekki að rífa mig yfir henni því ég nenni því ekki, en ég ósammála ÖLLU sem í henni stendur (alla vega svona næstum). Að fólk skuli hugsa svona....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home