....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, maí 25

Ath. þetta blogg var skrifað í gær, en svo vildi það ekki birtast......

Ég fór á Star wars áðan. Með fyndnari myndum sem ég hef séð lengi, svo eyðileggur það líka fönnið að maður veit hvað gerist næst því maður er búin að sjá framhaldsmyndirnar! Soldið svona: "yeah, he'll definetly live...."

Annars ætla ég núna að fara halda dagleg skrif um hvað ég geri nýtt á labinu, svona bara til að minna Ragnar á þegar hann kemur frá útlöndum hvað hann er way behind me múhahahahahhahahahahaha!!! Það er ekki skylda fyrir eðlilegt fólk að lesa.

Í dag:

Kláraði að gera mína eigin margra skrefa verklýsingu (hver verður undirbúin fyrir LE3 núna ha?)
Las alla meistararitgerðina hans Pálmars (núna veit ég líka allt um alla sigra og ósigra á labinu undanfarin 3 ár eða svo)
Fékk að nota massíft kúl apparat sem jónar gassameindir í næstum-vacuumi til að finna sprungur í línunni (fjólubláar eldingar sjást ekki á hverjum degi)
kláraði að setja tappana í línuna og fékk að setja hana í gang og prófa hana (á morgun athugum við hvort hún sé allveg þétt)
Slökkti eld (ekki mér að kenna)
Díft puttanum oní fljótandi köfnunarefni (suðumark -78°C )
Prófaði kaffivélina (There is never turning back)

Undanfarið:

Lært að skera gler og pælinguna á bak við glerblástur (Haraldi finnst gaman að kenna)
Lesið mér til um þurrkun algengustu leysa (jöbb)
Verið sögð góð í að brjóta (það er sko ekki á hvers manns færi)
Spurt fullt fullt fullt af gáfulegum spuringum og sjallað um fullt af lífsins nauðsynjum (fyrir efnafræðing)

Og örugglega eitthvað fleira sem ég man kannski seinna.

Coming up: Ester fær að eima leysa :o

Það er sko sport að vera ég ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home