....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, maí 23

í dag reyndi ég í fyrsta skipti að lesa þýsku að einhverju ráði. Það væri svosem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að það sem ég las var vísindagrein.... Eins og prófessorinn minn orðaði það: " Ekki kannski besta lesmálið fyir byrjanda..." En mér tókst samt allveg sjálf að fatta að "Alle Untersuchungen wurden uter AusschluB von Wasser und Luft durchefuhrt" þýðir nokkurn vegin: "Öll hvörf voru framkvæmd í vatnsfríum og loftfirrtum aðstæðum." Ha, geriði betur :D
Eru öll nafnorð á þýsku með stórum staf?

Annars hef ég voðallega lítið að segja um Júróvision annað en það að ég fór í fínt djamm í tilefni þess. Selma átti að mínu mati ekkert skilið að fá að taka þátt frekar en 90% af þessum lögum, sem mér fannst næstum öll glötuð... Leggja niður júróvision og setja peningana í heilbrigðiskerfið!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home