....Lyfleysan....

bull og vitleysa

sunnudagur, júní 5

í nótt varð ég fyrir undarlegri lífsreynslu í Sódómu nútímans, í borg óttans, henni Reykjavík okkar. Þannig var mál með vexti að ég var að dilla mér á Dillon, og þurfti eins og svo oft áður að bregða undir mig betri fætinum og fara á salernið. Svo kom ég á salernið og beið eftir að manneskjan á undan mér kæmi út, og þegar að því kom og ég fór inn þá voru báðar seturnar upplyftar, eins og þegar strákar pissa :o Samt er ég nokkuð viss um að þarna var kvenmaður á ferð. Hefur þetta mál valdið mér miklum heilabrotum, og hafa koið fram tilgátur eins og klæðskiptinur, hálfur kynskiptingur, brjáluð rauðsokka sem við 100% jafnrétti á ALLAN hátt, að hún hafi pissað á setuna og reynt að fela það svona og fleira og fleira og fleira.... Ætli ég muni nokkuð komast til botns í þessu :(
Svo lenti ég í annarri undarlegri lífsreynslu áðan, sem felst í því að okkur Pálu vinkonu dreymdi sama draum í nótt. Í báðum draumunum höfðum við hitt bláókunnuga stráka og vorum að spjalla við þá og vorum ýkt skotnar í þeim. Minn var samt ljóshærður en hennar dökkhærður. Þannig að nú á ég opinberlega draumaprins í grænni peysu sem á franska mömmu sem slapp úr klóm barnaníðingsins Marc Dutroit (or something) :D Verst að sú stelpa er töluvert yngri en ég, þannig að draumprinsinn er örugglega ekki einu sinni til :s

Svo var ógeðlegt par eða e-ð fyrir aftan okkur í leigubílaröðinni, sem gat ekki hætt að kyssast. Oj bjakk!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home