....Lyfleysan....

bull og vitleysa

sunnudagur, júlí 17

Loksins hafa efnafræðingar fengið verðskuldaða athygli eftir samsæri "efnafræðingsins" svokallaða og hryðjuverkamanna. Kannski verðum við umgengin með óttablandinni virðingu næstu árin eða jafnvel sett undir smásjá yfirvalda í hinum vestræna heimi sem mögulegir brjálæðingar! Allavega, þá ætti fólk að hætta að halda að það sé kennarastéttin blessaða sem við erum að sækjast í :)

En, svo við snúum okkur að mikilvægari málum. Ég er að fara til útlanda, og ekki bara til einhvers útlands heldur í langþráða ferð til Landsins sem ég ætla ekki að nefna en er fyrir botni miðjarðarhafsog er hersetið af Ísraelum :) Fer á þriðjudaginn og kem aftur laugardaginn 6. ágúst. Og ég ætla ekki að segja flugvalla, landamæra eða vegtálmamönnunum að ég sé efnafræðingur að næstum-mennt....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home