Þegar ég var á leið heim um daginn eftir eitthvað hangs varð ég vör við lítið skilti við endann á götunni minni. Samkvæmt þessu skilti bý ég í fallegustu götu garðabæjar 2005 :p Ég vil nú meina að það að ég sé stundum þarna fríkki mikið upp á hana...
Annars hefur ekki mikið drifið á mína daga, frekar en venjulega. Ég fór á minn fyrsta ritstjórnarfund hjá stúdentablaðinu um daginn,og ég strax komin með verkefni í hendurnar, og, því miður, deadline :s
Svo fór ég á Sonic youth í gær, það var mjög gaman.
Já, svo er ég að fara í próf á mánudaginn. crappy drasl :(

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home