Lentum í tel aviv klukkan hálf 6 að morgni 20. júlí, og vorum sótt af palestínskum strák sem býr á íslandi, og einn af strákunum sem voru í ferðinni þekkir. Fórum heim til hans og fengum mat (það er allveg merkilegt við menninguna þarna, að allir vilja bjóða þér inn á heimilið sitt, gefa þér mat og te og helst leyfa þér að gista líka) og svona, fundum svo æðislegt hostel í jerusalem sem við gistum á í 2 nætur. Meðan við vorum þar þá fórum við, auk þess að rölta um bæinn og þannig, í Dauða hafið (sem er svo salt að maður flýtur eins og kútur :D ), og í kírkjuna það sem jesú á að vera grafinn (church of the holy sepulchre).
Eftir þessa tvo daga fórum við til Nablus, sem er inná vesturbakkanum. Þar dvöldumst við í rúmlega viku, og vorum að ferðast um svæðið þar í kring. Nablus er 250.000 manna borg sem er ásamt þorpunum í kring allveg lokuð af og fólk kemst hvorki inn né út, auk þess sem Ísraelski herinn er mikið að leita af Hamas og Fatah liðum þar (eins og við heyrðum stundum á nóttunni þegar þeir voru að skjótast á). Það var svoldið skrýtið að búa á stað þar sem þú ert ekki frjáls ferða þinna og færð ekki að fara einn út á kvöldin og mátt alls ekki fara í suma borgarhluta og svona. Einnig lentum við í því að það var kallað á eftir okkur og þannig úti á götu ýmis ókvæðisorð, sérstaklega af einhverum krakkabjálfum sem héldu að við værum kanar eða ísraelar.
Annars vorum við þarna með Palestínsku læknasamtökunum (union of palestinian medical relief commities) og fórum með þeirra fólki til dæmis í helling af sumarbúðum sem eru reknar fyrir krakka á aldrinum 6-15 ára, til þess að halda þeim uppteknum þegar skólinn er ekki í gangi. Helsta vandamálið þarna felst í því að það er ekkert fyrir þessi börn að gera, það er 60% atvinnuleysi og þau hafa jafnvel þurft að horfa á fjölskyldu sína beitta ofbeldi og bræðrum sínum stungið í fangelsi, og það er verið að reyna að koma í veg fyrir að þau ákveði að það sé engin framtíð og fari og sprengi sjálf sig í tætlur á næsta vegtálma þegar þau verða eldri. Það var svona háfgerður poppstjörnufílingur í þessu öllu, krakkarnir voru að slást um að fá að leiða mann og e-ð :) Virðing mín fyrir fólki eins og Birgittu Haukdal og Jónsa hefur allavega aukist töluvert ;)
Fyrir utan það fórum við í heimsóknir í heilsugæslur og fórum með í læknavitjanir í þorpunum í kring (þú ættir að sjá tennurnar í fólkinu, það notar engin tannbursta).
síðasta daginn inn á vesturbakkanum fórum við til Qualquilia, sem er bær í norðri sem er umkringdur af veggnum sem ísraelar eru að byggja. Það var magnað.
Eftir þessa viku fórum við til Haifa, sem er strandborg í noðrur Ísrael. Vorum þar í 4 daga. Munurinn á þessarri borg og td. jerusalem var fáranlegur, svo ég tala ekki um munin á Haifa og nablus! Þetta var bara eins og að vera komin til Ameríku, nema bara að allir töluðu e-ð fáranlegt mál :) Fórum á ströndina, og á djammið, og svo sólbrunnum við öll svo mikið að við gátum ekkert farið meira út...
Eftir þá ferð fórum við aftur til Jerusalem og svo í dagsferð til Ramallah, og eftir það splittaðist hópurinn, 2 fóru aftur til Nablus og svo að ferðast, ég og einn strákur fórum aftur á hostelið okkar og vorum þar til heimferðar, og tvær stelpur dvöldu hjá palestínskri fjölskyldu sem þær þekktu e-ð. Maggi, sá sem var með mér á hostelinu þurfti að fara heim fyrr, svo ég var ein í 4 daga, og var að flakka með fólki sem bjó þarna, sem voru rosalega mikið blaðamenn og ljósmyndarar. Það sem stendur uppúr af því var dagsferð til Gaza, þar sem við heimsóttum eina af landnemabyggðunum sem á að rýma núna í vikunni og er búin að vera mikið í fréttum, Neve dekeim. Það var mjög áhugavert. Svo fórum við líka í dagsferð til Betlehem (því miður á föstudegi sem er frídagur hjá múslimum) og sáum fæðingarkirkjuna (ljót), og skelltum okkur svo á Sænsk/Palestínska tónleika og danshátíð. Það var allveg geggjað og svoldið skrýtið líka :)
Þetta var daginn áður en ég flaug heim.
Og þar hafiði það :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home