Frá því að ég bloggaði síðast um fiskabúrið hefur fiskunum mínum fjölgað um -2+1-1-1+2-4. Allir dóu á vofveiflegan hátt:
- Fiskurinn með krabbameinið deyr. Ég man ekki hvort ég bloggaði um hann á sínum tíma, en það er aukaatriði. Einn morgunin var hann komin með stóru kúlu út úr hliðinni á sér og augun voru orðin skrýtin (fiskar fá sérstök augu þegar þeir eru veikir sko). Svo u.þ.b. 4 dögum seinna var kúlan horfin og stórt sár komið í hennar stað, og fískurinn ófær um að synda. Ég miskunaði mig yfir hann og tók hann af lífi.
- Laxinn deyr. Ryksugan sem gekk undir nafninu Laxinn vegna litarháttar síns deyr á dularfullan hátt. Hafði ekki sýnt nein merki um veikindi, en var orðin rauður á litinn þegar hann fannst látinn um morguninn. Tilgátur um innvortis blæðingar hafa verið á lofti.
- Ný ryksuga keypt. Ber nafnið Ragnar vegna óska manns með sama nafni.
- Fiskur að nafni Guli fiskurinn, eða Tiger, deyr. Engin ummerki um veikindi, og engum tilgátum hefur verið varpað fram.
- Ragnar deyr sömuleiðis á dularfullan hátt. Hafði ekki sýnt merki um veikindi, en lá á bakinu þegar komið var að honum. Kannski gleypti hann stein og dó svo í svefni.
- Tvær nýjar ryksugur keyptar (eignadanum finnst ekki gaman að þrífa fiskabúr). Þær ganga undir nöfnunum Doppi og Randi af útlitsástæðum. Þær eru svo litlar að þær sjást varla.
- Randi finnst látinn í búrinu sínu, ástæður ókunnar.
- Doppi finnst "látinn" í búrinu sínu. Á hann vantaði alla ugga og sporða, og því beindust augu allra að hinum fiskunum, sem hafa átt það til að narta í sporða minni dýra. Doppi var drepin "the quick way" með sallibunu í klóstinu.
- Litli og Brjálaði fá líka sallibunu í klóstinu af mannúðarástæðum. Miskunnsamur eigandi þeirra tók eftir því að þeir voru allir í sárum og uggarnir voru að detta af þeim, auk þess sem augun sýndu glögg merki veikinda. Hinir fiskarnir hreinsaðir af áskökunum um að hafa étið Doppa.
Nú eru bara tveir fiskar eftir; Ljóti og Stóri. Stóri er augljóslega veikur og það væri barnaskapur að gera ráð fyrir að Ljóti sé það ekki. Ég geri ráð fyrir að eiga enga fiska eftir 2 daga.
Þá fæ ég mér kannski bardagafisk.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home