í dag tókst mér að búa til flóka (e. complex) sem ég hef ákveðið að gefa nafnið: "Gvakamóli", sökum einkennandi litarhafts. Annars hef ég lítið að segja, nema það að ég var næstum klukkutíma að keyra heim úr skólanum sökum umferðaröngþveitis sem skapaðist vegna kvennafrídagsins svokallaða. Ég fékk ekki frí, Gvakamóli gengur fyrir. Annars máttum við fá frí í dag en þá hefði ég þurft að búa til Gvakamóla á morgun í einhverri kremju með hinum hópnum. Kæri mig ekkert um þannig vitleysu! Ég hlakka mikið til að taka Gvakamóla með mér heim :D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home