....Lyfleysan....

bull og vitleysa

þriðjudagur, janúar 10

Í dag fékk ég Quiznos bát og kók á 50 krónur íslenskar. Það gladdi mitt litla hjarta, eftir að hafa eytt fjórum klukkutímum á labbinu við þrif.
Annars var rétt í þessu að rifjast upp fyrir mér hlutur sem ég ætlaði að ræða um í tengslum við nýyfirstaðna Japansför mína. Reyndar tveir hlutir:
1. Í 12 milljón manna borg tókst okkur að hitta sömu íslendingana tvisvar við alls óskyld tækifæri. Ef skyld tækifæri eru með verða skiptin fjögur. Hversu fáranlegt er það.
2. Eftir að hafa farið á Subway í útlandinu mun ég ALDREI fara á Subway á Íslandi aftur. Miðað við útlandið er Subway hér subbulegur, vondur, ó-ferskur og glataður að öllu leiti. Reyndar var ég hætt að fara á umræddan stað hér heima áður en ég kynntist öðru og betra, en það er önnur saga.

7 Comments:

At 11/1/06 10:49, Blogger Hákon said...

Hvers vegna er svikari í ólífræna liðinu?

Þú hlýtur núna að sjá eftir því að hafa ekki hleypt fleiri traustsins verðum inn í ólífræna liðið ;)

 
At 11/1/06 13:31, Anonymous Nafnlaus said...

já það er rétt. En til þess að komast í ólífræna liðið þarf maður að vinna á ólífræna labbinu, og það hefur þetta áður nefnda "traustsins verða" fólk ekki gert. Svikarinn fór til þýskalands að læra eðlisefnafræði, og er sjálfum sér og fjölskyldu til háborinnar skammar.

 
At 12/1/06 10:03, Blogger Hákon said...

Já satt er það.
Allir sem fara til Þýskalands eru augljóslega sér og fjölskyldum sínum til háborinnar skammar.

 
At 13/1/06 10:25, Anonymous Nafnlaus said...

Subway er ógó! mæli með quiznos í staðinn!
og talandi um svikara... þetta er slæmt. Helduru að hann eigi nokkuð afturkvæmt? Gæti hann snúist til betri vegar seinna á lífsleiðinni?

/Helga

 
At 13/1/06 16:08, Anonymous Nafnlaus said...

Það er spurning....

 
At 15/1/06 13:07, Anonymous Nafnlaus said...

Sem einn of (greinilega) fjölmörgum japansförum get ég staðfest að athuganir Estersins um þetta furðulega eyjasafn er mjög nákvæmt, vel athugað og orðað. Svo styð ég líka frjálslega notkun "og" í skrifuðu máli. Velkomin heim á sker, en þín er saknað. xo.

 
At 14/2/06 21:12, Anonymous Nafnlaus said...

Já, ég hef kallað ævarandi skömm yfir mig, forfeður mína og afkomendur mína (núna er ég feginn að vera ekki japani, því þá yrði ég trúlega að fremja ógeðslegt sjálfmorð núna).

 

Skrifa ummæli

<< Home