Í gær var ég hætt komin vegna árásar köngulóar þegar síst skyldi. Þannig var mál með vexti að ég var að vinna í makindum mínum þegar flykkið blasir við mér (já flykkið, það var á stærð við þumalputtanögl, brúnt með langar lappir). Þegar ég kemst yfir mesta sjokkið næ ég mér í hreingerningarúða (ég snerti EKKI köngulær, hvorki beint né óbeint) og úða á kvikindið eins og ég eigi lífið að leysa (sem ég augljóslega átti). Ljóst er að þarna var um einhverja geim-könguló að ræða þar sem það tók hana að minnska kosti 15 mínútur að deyja drottni sínum, og ("og" ekki sem samtenging) þá ryksugaði ég hana upp. Ekki lauk málinu þar, því þegar ég kom heim í dag, kemst ég að því að faðir minn hefur verið að hafa kvikindið fyrir gæludýr, og ábyggilega verið að fóðra það á einhverju gómsæti.
Og þá kemur lokaspurningin: Er sumar, eða er verið að reyna að drepa mig?!

14 Comments:
Ég gruna föður þinn um græsku
Kannski svikarinn sé að reyna að koma þér fyrir kattarnef? Eða köngulóarlappir öllu heldur.
já, það er líklegt...
það er furðulegt að þú sért ekki löngu búin að átta þig á því að það er verið að reyna að losna við þig út úr húsinu!!
harpasif
Miðað við að það er snjór fyrir utan glugga minn og það er febrúar, þá hallast ég að því að það sé ekki sumar. Þannig að einhver er að reyna að myrða þig. Hverskonar fjölskyldu áttu eiginlega ?
Það er greinilegt að Harpa Sif stendur á bak við þetta.
Þú gætir kannski prófað að lauma inn til hennar illskeyttum fiskiflugum?
Jú ég þarf að gera það. Reyndar finnst mér líklegra að þarna sé Bergur á ferð, því að hún mun fá herbergið mitt þegar ég loksins fer....
Ég gruna samt föður þinn um að vera líka með í ráðum. Kannski vill hann herbergið hennar Bergs sem tómstundaherbergi.
já kannski. Ég þarf að vera vör um mig...
Eina lógíska skýringin er að Mossad hafi komist á snoðir um þig, og um að þú hafir ekki bara verið í Ísrael vegna þess að þú ert sannkristin og vildir sjá fæðingarkirkjuna.
Vertu vör um þig!
Þetta gæti verið rétt hjá þér. Ég er búin að lenda í öðru köngulóaratviki síðan, og einnig reyndi skuggaleg fluga að komast inn í bílinn minn áðan.
Þetta svo gott sem staðfestir það sem ég hef alltaf haldið.
Bergur er stjúpsystir Guðrúnar og þær vissu báðar af því að Jón gamli er með alzheimer! Ekki nóg með það heldur voru í gær millifærðar 5000 krónur á bankareikning í eigu flugunnar á Cayman-eyjum...
Þú hefðir betur sleppt því að uppljóstra þessu, Ester. Bwa ha ha. Kannski að kjarnorku sprengjurnar hafi orðið til þess að japanskar pöddur eru 10 sinnu stærri en þær ættu að geta verið. Og það vita allir að það er engin huggun betri við kónguló eða kakkalakka inni hjá sér en að senda myndir til þeirra sem hafa síst gaman af. :)
Hehe :) Ég er samt ekki hrædd við myndir af köngulóm, ég meira að segja horfði á sjónvarpsþátt um slíkar bara í gær!
Skrifa ummæli
<< Home