Þessi grein er greinilega heimskulegasta grein í heimi beinþýdd upp af ólesnum fáfróðum fávita eftir einhverjum helvítis nýaldarkuklara. Hér má finna setningar eins og að eftir að keyra á eftir strætói í korter ertu umkringdur skýi af plúsjónum, HIV er skaðlaus farþegavírus og vetnisperoxíð má nota við eyrnamerg (ég nota vetnisperoxíð stundum til að þrífa í vinnunni þegar allt annað virkar ekki). Já, og að sykur gerir þig veikan af því það lokar á virkni hvítra blóðkorna. Einnig má finna ýmsar greinar í sama dúr hjá þessari konu, þar sem meðal annars er talað um gríðarlega hættu á kvikasilfureitrun vegna fisk-hveiti-og lyftiduftsáts, gríðarlega skaðsemi bólusetninga og fleira spennandi.
4 Comments:
Ég lenti einmitt allherfilega í þessum jákvæðu jónum um daginn, þær tækluðu mig og ætluðu að borða mig en ég náði að elta annan strætó með neikvæðum jónum og þær buffuðu síðan jákvæðu jónirnar!
mér er illt í íslenskunni, heilanum og sálinni. og gott ef ekki hjartanu líka...
Það er gaman að þessu rugli :P Og það er gaman að sjá hversu mikið af heimsóknum er búið að fara á þessa síðu síðan að ég benti þér á hana :D
Ég er engan veginn sammála að það sé gaman að þessu. Svona fáfræði er með því fáa sem spyrna mun við offjölgun á Vesturlöndum. Þetta fífl vekur mér hroll!
Á móti bólusetningum? Mér er skapi næst að siga öllum mínum veiruættingjum, sveppum, frjókornum, bakteríum og strætójónum á svona fávita.
Skrifa ummæli
<< Home