....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, maí 15

Nú er ég búin að vera einn dag að skrifa ritgerð, og hef gert nokkrar athuganir því samfara:

1. Það er ekki hægt að skrifa ritgerð og hlusta á Queens of the stone age í leiðinni. Það finnst mér miður.

2. Það er hins vegar hægt að skrifa ritgerð og hlusta á Neil Young í leiðinni. Sem betur fer á ég meira en fullan íslenskan (samkvæmt lögum, that is) vinnudag af Neil Young í tölvunni.

3. Ég hlýt að vera sóði því það er ógeðsleg brennisteinsstækja af vinnubókinni minni, svo mikil að ég vil helst ekki snerta hana. Reyndar vissi ég þetta fyrir því þessi sama lykt er af vasareikninum, skólatöskunni, blýantnum og vinnufötunum. Var líka af tölvunni en er af einhverjum ástæðum farin þaðan.

4. Það er ekki gott að horfa á fréttir þegar maður er í skriftagír því þá hættir maður að skrifa ritgerð og fer að hugsa um að skrifa níð um þjóðfélagsástandið.

5. Þegar maður skrifar ritgerð þá fer maður mikið að hugsa um hvað annað væri hægt að gera, eins og að lesa bækur eða horfa á fashion TV, það er í sjónvarpinu núna.

6. Maður fer líka mikið að hugsa um hvað skal gera þegar maður er hættur að skrifa ritgerð, eins og að fara á Hróarskeldu og vera almennt latur og fullur.

5 Comments:

At 16/5/06 09:17, Blogger Hákon said...

AMK eitt af þessum atriðum er alveg krúsjal...

 
At 16/5/06 13:36, Blogger Mjallhvit said...

já og þú bloggar þegar að þú átt að vera skrifa ritgerð ;)

 
At 16/5/06 14:59, Anonymous Nafnlaus said...

Já, veriði ekki að kvarta, þið fáið þá allavega blogg einhvertímann :)

 
At 16/5/06 21:39, Blogger Mjallhvit said...

hehehe.. jú jú mikið rétt.. látum oss njóta þess að ungfrú Ezter ákvað að heiðra okkur með rita visku sína niður fyrir okkur hin;)

 
At 16/5/06 23:41, Anonymous Nafnlaus said...

Gott, mér líst vel á svona hugsunarhátt.

 

Skrifa ummæli

<< Home