Jæja, þá er komið að því. Lesendum þessarrar síðu er boðið í allsherjar útskriftarteiti útskriftarnema efnafræðiskorar á Pravda næstkomandi laugardag. Nákvæmari staðsetning væri "MMM" herbergið á efri hæð staðarins, og ef einhver spyr eru menn á vegum Hvarfs. Krassandi tilboð á barnum sem óeðlilegt væri að sleppa. Mælt er með því að fólk mæti ekki mikið fyrir 10, enda enda geri ég ekki ráð fyrir að mæta sjálf fyrr en þá. Er þetta síðasta tækifærið til að hitta undirritaða í viku, því téð undirrituð hyggst vera stödd í smábænum Hróarskeldu í náinni framtíð.

1 Comments:
Hæ elskan, innilega til hamingju með útskriftina og rosalega góða skemmtun á Hróarskeldu. Ekki fara of varlega!
Skrifa ummæli
<< Home