....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, júlí 12

Nú í tilefni þess að ég er komin með slatta af uppsöfnuðum fréttum af sjálfum mér og öðrum þá hugsa ég að komin sé tími á nokkrar línur á þessa annars dauðu bloggsíðu mína.

Ég hef farið til Hróarskeldu og er komin til baka, átti þar ágætar stundir í góðum félagsskap Eyrúnar, Báru, Jóns og Jóns, þrátt fyrir hita sem ekki hefði verið sæmandi ræsisrottu. Þá er best að afgreiða "algengar spurningar" svokallaðar:

Sástu Bob Dylan? Já, fimm lög sem ég þekkti ekki, þá fór ég annað. Kunnugir hafa tjáð mér að hann hafi sogið rass.
Sástu Axl Rose? Lítið, hann var klukkutíma of seinn og þá þurfti ég að vera annarsstaðar.
Sástu Sigurrós? Já, en það var of mikill troðningur til þess að ég kæmist í "gírinn" fyrir þá svo ég fór flótlega.
Hvernig voru bestir? Tool. Klikkaðir tónleikar og klikkað sjó.
Hvernig var maturinn? Betri en ég átti von á.
Hvernig voru klósettin? Betri en ég þorði að vona. "Rennan" var áhugaverðust.

Svo fólk haldi ekki að ég hafi ekkert gert og ekkert séð þá gerði ég mikið af því að rölta á milli sviða og kíkja á það sem virtist áhugavert, og ég sá margt mjög áhugavert...
Myndir frá ferðinni má sjá á heimasíðu jóðlfjelagsins, þar á meðal mynd af "rennunni".

Á meðan ég var úti fékk ég þær fréttir að ég og samnemendur mínir hefðum fengið inngöngu í Univeristy of Ottawa sem skiptinemar á næstu haustönn. Ég mun því halda af landi brott 29. ágúst, stoppa nokkra daga í "stóra eplinu" og síðan er stefnt á að vera komin til Ottawa 2. eða 3. september. Ég kem heim í síðasta lagi á aðfangadag.

Annars var upphaflegur tilgangur þessarrar færslu að koma nokkrum orðum á framfæri við almenning:

Félagið Ísland-Palestína boðar til mótmælafundar á Austurvelli, fimmtudaginn 13. júlí kl 17:30, til að mótmæla stríðsglæpum Ísraelshers á Gaza og sýna samstöðu með mannréttindabaráttu palestínsku þjóðarinnar. Ávörp flytja Guðrún Ögmundsdóttir alþingismaður og Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína. Fundarstjóri verður Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar. Tónlist flytja hljómsveitin Llama og KK, en tónlistaratriðin hefjast hálftíma á undan mótmælafundinum eða kl. 17:00.

Síðastliðinn sunnudag, þann 9. júlí, voru 2 ár liðin síðan Alþjóðadómstóllinn í Haag kvað upp úrskurð um ólögmæti Aðskilnaðarmúrsins sem verið er að reisa í hertekinni Palestínu, skyldu Ísraelsstjórnar til að brjóta hann og fjarlægja og að bæta íbúunum það tjón sem hann hefur valdið. Þar var líka kveðið á um skyldu allra aðildarþjóða Sameinuðu þjóðanna til að fylgja því eftir að Ísraelsríki hlíti úrskurðinum. Sú skylda nær líka til Íslands.

En sem fyrri daginn lætur Ísraelsstjórn eins og hún sé hafin yfir lög og rétt. Bygging Aðsklinaðarmúrsins á Vesturbakkanum heldur áfram og síðustu vikur hafa okkur borist óhugnanlega fréttir af árásum Ísraelshers á óbreytta borgara og samfélagsstoðir á Gaza svæðinu. Áköll berast til umheimsins frá ísraelskum og palestínskum friðarsamtökum, mannréttindasamtökum, kirkjufélögum og fleirum um að allir sem ekki geta látið sér á sama standa um örlög stríðshrjáðs fólks í Palestínu mótmæli af krafti framferði Ísraelshers.

Fjölmennum og látum sem flesta vita!!

Pesrónulega ætla ég líka að mótmæla framferði Ísraelsstjórnar, Bandaríkjastjórnar, ríkisstjórnar Íslands, sameinuðu þjóðanna, NATO og allra hinna sem þora ekki að gera neitt.

Þá þakka ég kærlega fyrir mig, yfir og út.

1 Comments:

At 30/7/06 03:31, Anonymous Nafnlaus said...

Sjaumst i Kanada :)

kv
Gaui og Tobba

 

Skrifa ummæli

<< Home