....Lyfleysan....

bull og vitleysa

sunnudagur, september 17

Í gær ákváðum við íslendingarnir í Ottawa að skella okkur á leik í amerískum fótbolta, þar sem skólaliðið okkar, GeeGee's mætti liði sem kallar sig McMaster. Við fengum gefins allskonar dót, hatta, "hendur", spjöld og hrossabresti þegar við mættum þarna galvösk tilbúin að styðja okkar lið. Sem reyndar gekk ekkert voðallega vel framan af, þar sem ekkert okkar þekkti til amerísks fótbolta, þannig að við eyddum fyrsta leikfjórðungnum í að herma eftir drengjum sem sátu fyrir aftan okkur, sem reyndust síðan vera að hvetja hitt liðið áfram :s Eftir þetta gekk allt saman betur, en þrátt fyrir lætin í okkur töpuðu GeeGee's 24 - 19, eftir æsispennandi leik. Þó var okkur farið að leiðast þófið, því, eins og þeir vita sem hafa séð amerískan fótbolta í sjónvarpinu, gengur leikurinn út á það að að grípa boltann og reyna að hlaupa með hann að vallarendanum, og varnarmenn (stórir feitir gaurar) hins liðsins reyna með öllum ráðum að hindra þig. Sem leiðir til þess að hver "lota" varir ekki nema í 10 sekundur í mesta lagi, síðan er tíminn stoppaður á meðan liðið rottar sig saman. Þannig að þessi klukkutíma leikur stóð í raun í tvo og hálfan tíma. Ég var að reyna að setja inn myndir, en það virðist ekki virka sem skildi....

1 Comments:

At 18/9/06 11:27, Anonymous Nafnlaus said...

oh vá hvað ég get ímyndað mér þetta.. þú að hvetja vitlaust lið og skilur ekkert í leiknum!! hehe
harpasif

 

Skrifa ummæli

<< Home