Jæja, þá er ég loksins komin í almennilegt netsamband og get farið að skrifa eitthvað hér. Við komum til Kanada í gærmorgun eftir fjóra daga í New York og 11 tíma rútuferð með klukkutíma töf við landamærin útaf okkur (heheee....). Í NY gistum við hjá vinkonu Sunnu sem býr í Brooklyn, þannig að tilfinningin var soldið eins og að vera komin í miðja hollywood mynd þar sem allir hanga á tröppunum hjá sér, hlusta á útvarpið og drekka dularfulla vökva úr flöskum sem huldar eru með bréfpoka. Þar sáum við nokkurnvegin allt sem okkur datt í hug að fara að skoða; frelsisstyttuna, Wall street, empire state, cental park og the body exhibition svo dæmi séu tekin.
Þegar við komum til Kanada var íslenskt veður, með rigningu og svolitlum kulda (ekki roki samt). Campusinn er risa stór og mjög fallegur finnst mér, sem og allt sem við höfum séð af bænum, sem er reyndar ekkert voðalega mikið. Herbergið mitt er ekkert voðallega stórt, en alls ekkert of lítið og ég er með óhuggulega mikið skápapláss og útsýni yfir borgina (er á 14. hæð). Baðherbergið og eldhúsið, sem er sameiginlegt, er ekkert voðalega heillandi, en það hlýtur að venjast fljótt.
Annars skilst mér að það sé skiptinemahittingur einhver á morgun, og mig minnir að kennsla byrji á fimmtudaginn. Ef ég hef mig í að læra að setja myndir hingað inn þá geri ég það örugglega. Annars fyrir áhugasama er skypið mitt esteringa, msnið mitt sterie83@hotmail.com og símanúmerið á herbergið 001 613 5645400 ext. 2267. Heimilisfangið er:
Marchand residence
Room 1402S
110 University Pr.
K1N 9A8
Ottawa, Ontario
Canada
og mailboxið mitt er nr. 560.
Ananrs bið ég að heilsa í bili.

4 Comments:
Gott að vita að þú komst heil á leiðarenda. ég er komin með blogg, blog.central.is/lumandi
Heyrumst Pálann.
Gaman að heyra frá þér. Vertu duglega að blogga. hvað er hitastigið þarna?
mamma
I looove Canada.
Þú getur séð hitastigið á www.weather.ca :)
Pála: gott að vita :)
Mamma: ég veit það ekki, nóguu heitt til að ég voni að það verði áfram skýjað.
Skrifa ummæli
<< Home