....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, október 2

í dag lenti ég í fyrsta skipti í því á ævinni að vera rekinn út úr húsi þegar brunabjalla fer í gang. Einnig sá ég í fyrsta skipti á ævinni tvo slökkviliðsbíla og menn í fullum slökkviliðsmannaklæðum mæta á svæðið þegar brunabjalla fer í gang. Augljóslega var enginn eldur, heldur voru skynjararnir ábyggilega að bregðast við einhverju sem fylgir efnafræðitilraunum.

Annars er allt enn í biðstöðu hjá okkur Sunnu, við erum ennþá í þessu "neyðar"herbergi (komnir 10 dagar núna) og okkur skilst að sé verið að bíða eftir meindýraeyðinum, þó enginn geti svarað hvenar sá maður eigi að mæta á svæðið. Allt annað er líka allveg óljóst, til dæmis hefur enginn getað svarað hvort það sé hægt að henda skónum og fötunum sem má ekki þvo í frysti, sem væri ágætt að fá að vita því að hitastigið er á hraðri niðurleið. Þannig að núna er ég bara að bíða eftir að einhver af þessu liði sem á að vera að sjá um þetta banki uppá svo ég geti látið í mér heyra.

Fyrir utan þetta segi ég allt ágætt. Nú eru byrjuð vikuleg America's next kvöld heima hjá Auði á miðvikudögum, sería 7 í gangi (ha ha). Svo hittumst við og elduðum á laugardagskvöldið, líka heima hjá Auði, og gerðum tilraun til að kíkja á bæjarlífið í Ottawa. Það fór nú ekki betur en svo að allir staðir lokuðu kl. 2, sem kom íslendingunum í opna skjöldu, enda ekki vanir að fara í bæinn svona "snemma". Okkur skildist að eina sem hægt væri að gera eftir tvö væri að fara á strippbúllu, en við vorum ekki allveg á þeim buxunum svo við keyptum okkur pizzasneið í staðinn og drifum okkur heim.
Um næstu helgi er svo þakkargjörðarhátíðin, en þar sem enginn er búin að bjóða okkur í kalkún verðum við örugglega bara heima í leti. Svo eru að skella á próf í lok mánaðarins.....

2 Comments:

At 4/10/06 18:16, Anonymous Nafnlaus said...

Uss þið verðið bara að opna Íslendingabar þarna ytra, myndi örugglega slá í gegn að hafa opið fram eftir öllu :)
Kv. KM

 
At 4/10/06 18:18, Anonymous Nafnlaus said...

Uss þið verðið bara að opna Íslendingabar þarna ytra :) myndi örugglega slá í gegn að hafa opið fram eftir öllu!
Kv. KM

 

Skrifa ummæli

<< Home