....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, október 9

Þá er þessi langa helgi hér í útlandinu að lokum komin og ég búin að snúa sólarhringnum allhressilega við (fór á fætur hálf þrjú í dag...). Sem betur fer þarf ég ekki að mæta fyrr en 11:30 á morgun....
Á laugardagskvöldið fórum við á þetta Rockstar kvöld með Magna og Dilönu. Áður var fyrirpartý hjá Kristínu sendiráðsstarfsmanni og Sigurþóri manninum hennar, svo maður náði aðeins að kynnast mannskapnum áður en lagt var í hann, kl. 9 eins og kanadískir siðir kveða á um. Ég segi nú ekki að kvöldið hafi komist nálægt því að vera peningana virði, en ég skemmti mér samt mjög vel, þó það hafi nú minnst verið rokkstjönunum að þakka.... Fékk samt mynd af mér með Magna og Dilönu, og setti hana á myndasíðuna ásamt fleiri myndum, sem allar eru fengnar frá Sunnu (ég nennti ekki að taka neina myndir sjálf).
Skemmtilegra er þó frá því að segja að fyrrnefnd Kristín og Sigurþór buðu okkur í þakkargjörðarmáltíð heima hjá sér í gærkvöldi, þar sem boðið var upp á 9 kg kalkún með öllu tilheyrandi. Svo fólk geri sér betur grein fyrir stærðinni á kvikindinu þá náðum við sex bara að borða rúmlega 1/3 af honum.... Svo var drukkið kaffi, borðað graskersböku og ís, og spilað pictonary til eitt í nótt. Því miður klúðraðist allgerlega myndatakan af þessu frábæra kvöldi, ég ætla að reyna að fá einhvern til að senda mér nokkrar, allavega af kalkúninum!

3 Comments:

At 10/10/06 10:37, Blogger Sandra said...

9 kílóa kalkúnn...? Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að ég hafi ekki náð þeirri þyngd fyrr en 18 mánaða gömul.

Þetta er skuggalegt...!

 
At 10/10/06 15:04, Anonymous Nafnlaus said...

Haha :) Ekki nóg með það, þetta var minnsti sem hún fann...

 
At 10/10/06 21:06, Anonymous Nafnlaus said...

Móðir þín og systur hefðu borgað mikið fyrir að vera á milli Dilaönu og Magna fyrir nokkrum viku.
Það var vakað í hverri viku og greidd atkvæði. Mynd komin í background.
Flott.

 

Skrifa ummæli

<< Home