....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, október 4

Ég er búin að laga kommentakerfið, Kristín var svo vinsamleg að benda mér á að það væri ekki hægt að kommenta, svo nú ætti það að vera hægt.

Annars er ég með merkilega sögu.
Hér í Ottawa er frekar mikið um betlara, sem hanga fyrir utan stórmarkaðinn og niðri í bæ. Reyndar er þetta ágætis fólk, alltaf mjög kurteist og aldrei ágengt, en samt sem áður getur þetta verið svolítil plága. Það er reyndar stefna hjá mér að gefa ekki betlurum, kallið mig bara harðbrjósta, en svona er þetta bara. En já, aftur að sögunni. Ómar, sem er núna í mastersnámi í Vancouver, var búin að segja mér að á veturnar væri öllum rónum og betlurum í þessum hluta landsins smalað í rútur og þeir keyrðir yfir til Vancouver, þar sem frystir ekki á veturna. Fyrir fáfróða verður hér 30 - 40 stiga frost þegar vetur koungur er upp á sitt besta. Svo þegar ég labbaði í búðina í fyrradag veitti ég því athygli að það vantaði alla betlarana, og þegar ég fór að minnast á þetta við krakkana þá höfðu þau líka veitt þessu athygli... Þannig að nú vil ég fá að vita, Ómar, ef þú lest þetta, hvernig er betlaraástandið í Vancouver?!?!

Annars er nýtt að frétta af pöddumálinu, herbergin okkar voru eitruð aftur í dag, og það á að gera þaðí þriðja skipti 12. október, og þá er hugsanlegt að ég megi flytja til baka. Þangað til verðum við Sunna í sambúð :s
Svo lítur út fyrir að ég sé að fara á (rándýra) tónleika með Magna og Dilönu á laugardaginn á einhverjum klúbbi hér í Ottawa. Þetta á víst að vera voða fámennt og var auglýst sem e-ð djamm með þeim, þannig að kannski fær maður að hitta fræga fólkið. Það er allavega EINS GOTT að þetta verði peningana virði!

1 Comments:

At 5/10/06 04:59, Anonymous Nafnlaus said...

Ég eyði öllum stundum upp í skóla þessa dagana og hef lítið farið niður í bæ til að kanna málið.

En það er þó nokkuð mikið um betlara hér svo mikið er víst, hvort þeim hefur fjölgað upp á síðkastið get ég ekki sagt til um.
En ég skal spyrjast fyrir um þetta og láta ykkur svo vita.

Annars er ég sammála þér í því að gefa ekki pening til þeirra. Ef maður gefur einum kallar maður yfir sig að gefa öllum hinum. Það eru til staðir fyrir þetta fólk að fá mat og aðstoð, þeim vantar hinsvegar flestum pening fyrir dópi. Það er þeirra vandamál ekki okkar.

 

Skrifa ummæli

<< Home