Á morgun er hrekkjavaka. Í tilefni þess reyndum við íslendingarnir aðeins að ná í rassgatið á stemingunni með því að kíkja í bæinn á laugardagskvöldið og skera út grasker á sunnudagskvöldið.
Við byrjuðum laugardagskvöldið á fordrykk heima hjá Auði, þar sem menn gerðu einnig tilraun til að klæða sig í einhverskonar gervi. Búningatilraunir gengu frekar illa, þar sem við komum að sjálfsögðu bara með föt til útlandsins sem við höfðum hugsað okkur að ganga í... Þetta endaði með því að ég fór í svört föt, setti á mig overload af augnmálningu og rauðan varalit, og gerðist gothari, og Auður setti í sig fléttutíkarspena. Ég hef þó grun um að fólk hafi almennt ekki fattað gervin okkar, og haldið að þarna væru á ferð gothari og hallærispæja í alvörunni... Ragnar og Sunna gugnuðu algjörlega á dæminu, iss.

Siðan fórum við og fengum okkur mat og drykki, og héldum síðan á eina skemmtistað bæjarins sem við þekkjum einhver deili á, Minglewoods. Þar hittum við meðal annars japanska hóru, sjóræningja, strump, löggu og ýmsa aðra áhugaverða einstaklinga. Eitt af því sem var mest áberandi í búiningavali kvenmanna voru gríðarlega stutt pils og flegnir bolir, og virðist aðalmálið með hrekkjavökubúningum hjá þeim að vera sem fáklæddastar.
Á sunnudeginum var síðan ákveðið að slá til og skera út grasker, til að fullkomna stemninguna. Þannig að við löbbuðum niðrá markað í íslensku slagveðri, versluðum grasker á mann, og burðuðumst svo með flykkin heim til Auðar, þar sem aðgerðin átti að fara fram. Og aðgerð er réttnefni, því manni leið eins og maður ynni í sláturhúsi þegar við vorum að skafa aldinkjötið innan úr og týna úr steinana (þá ætlum við að rista og borða eins og snakk). Síðan er skurðurinn sjálfur framkvæmdur með sérstökum hnífum, eftir að maður er búin að teikna eða rispa myndina sem á að skera út í hýðið. Þetta reyndist allt saman talsvert auðveldara en við gerðum ráð fyrir, og núna er Auður með fjóra mis-skelfilega graskerskalla á svölunum hjá sér :)
Myndasíðan var með einhver leiðindi við mig, og mér tókst bara að koma einni mynd inn hér, ég ætla að reyna að laga það bráðum...
Annars vil ég líka minna á að það er kominn vetrartími í Kanada, svo núna er ég fimm klst. á eftir Íslandi...

1 Comments:
hæ hæ frænka
Langaði bara til að kvitta fyrir mig og óska þér góðs gengis í úglandinu...
Kv
Ingibjörg og Hafsteinn biður að heilsa
Skrifa ummæli
<< Home