....Lyfleysan....

bull og vitleysa

þriðjudagur, janúar 16

Takk Arna fyrir að opna augu okkar allra fyrir skaðsemi örbylgjuofna (og fleiri hluta, svo sem bólusetninga):

1. Að borða sífellt mat hitaðan í örbylgjuofni veldur langtíma- varanlegum heilaskemmdum vegna áhrifa á rafstrauma í heilanum (umpólun eða afseglun á vefjum heilans).
2. Mannslíkaminn getur ekki efnaskipt (brotið niður) þessi óþekktu aukaefni sem verða til við örbylgjuhitun.
3. Framleiðsla á karl-og kvenhormónum minnkar og/eða breytist við langtíma neyslu á örbylgjuðum mat.
4. Áhrif óþekktra aukaefna sem hafna í líkamanum eru varanleg.
5. Vítamín, steinefni og önnur næringarefni í matvælum minnka eða breytast við örbylgjur, þannig að líkaminn græðir ekkert á fæðunni.
6. Steinefni í grænmeti breytist í krabbameinsvaldandi sindurefni í örbylgjuofni.
7. Örbylgjaður matur veldur krabbameinsvexti í maga og þörmum. Þetta gæti skýrt ört fjölgandi ristilkrabbameinstilfella í Bandaríkjunum.
8. Langtíma neysla matar úr örbylgjuofnum veldur fjölgun krabbameinsfruma í blóði.
9. Stöðug neysla matar úr örbylgjuofnum veldur röskun á ónæmiskerfi manna í gegnum eitla-og blóðvökvabreytingar.
10. Neysla matar úr örbylgjuofnum getur valdið minnisleysi, einbeitingarskorti, tilfinningaóróa og greindarskorti.

Þarna má einnig finna lofsöng um vatnsþynnt vatn (yfirleitt þekkt undir nafninu blómdropar).

Svo ef fólk hefur áhuga á að kaupa sér afoxandi osonkrem, víra til að silfurjóna vatnið sitt og tæki sem hreinsa blóðið má versla það hér.

4 Comments:

At 16/1/07 23:51, Blogger Helga Dogg said...

Já, þessir blómadropar hafa algjörlega bjargað heilsunni minni! Og þó það sé nú ekki minnst á afoxandi ósonkremið, sem kemur öllum vingjarnlegu radíkölunum inn í líkamann minn. Þess er nú þörf eftir að hafa lifað allt sitt líf í blindni og notað örbylgjuofn eins og maður fái borgað fyrir það! Þessar drápsvélar eru nú ekkert annað en samsæri vísindamanna til þess að útrýma okkur, venjulega fólkinu! Ekki hef ég séð neinn alvöru vísindamann nota örbylgjuofn (fyrir utan Wang, en hann er náttúrulega ekki tekinn með því hann leikur sér líka með HCl gaskúta)

 
At 17/1/07 00:04, Anonymous Nafnlaus said...

Nei þetta er rétt hjá þér, það eru bara aumir sumarstarfsmenn og mastersnemar sem nota örbylgjuna upp í vinnu. Þetta er augljóslega samsæri!

 
At 22/1/07 12:45, Anonymous Nafnlaus said...

Halló! Hverju missti ég eiginlega af :O

 
At 27/1/07 03:28, Blogger AuðurA said...

Rosalega verð ég með heilbrigðan maga og fínan ristil. Held áfram að tíma ekki að kaupa mér örbylgjuofn.

 

Skrifa ummæli

<< Home