....Lyfleysan....

bull og vitleysa

sunnudagur, apríl 22

Í dag sá ég kosningaauglýsingu frá framsókn í fréttablaðinu. Hún var áhugaverð fyrir þrennar sakir:

1. Hún byrjaði á "þitt atkvæði tryggir..."
Ég sé ekki hvernig flokkur sem slefar í 10% atkvæða ætlar að tryggja mér eitt eða neitt, í besta falli verður hann í leppsflokkur í ríkisstjórn sjálfstæðisflokksins.

2. Flokkurinn lofaði fallegum hlutum, til dæmis átti að hafa tannlæknaþjónustu til 18 ára ókeypis, öll rými á elliheimilum áttu að vera einstaklingsrými, þjóðvegir tvöfaldaðir, 12 mánaða fæðingarorlof og fleira og fleira.

3. Hækka skattleysismörk í 100.000 kr og lækka vsk á lyfjum.

Þá er mér spurn, hvernig ætlar framsókn að fara að því að punga út peningum fyrir öllum fögru loforðunum í 2. ef þeir ætla að lækka skatta eins og lofað er í 3? Sérstaklega í ljósi þess að nú þegar eru ekki til peningar til þess að halda deildum spítalanna opnum allt árið, BUGL biðlistar hafa aldrei verið lengri - allt í hassi?

3 Comments:

At 23/4/07 11:35, Blogger Unknown said...

ekki það að ég vilji vera með leiðindi en eru þetta ekki sömu loforð og VG eru með ?

 
At 23/4/07 13:23, Anonymous Nafnlaus said...

Ég veit það ekki, þeir hafa ekki sett heilsíðuauglýsingu með kosningaloforðum í fréttablaðið ennþá :)

 
At 24/4/07 09:52, Blogger Hákon said...

Obbobobb ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home