....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, apríl 25

Eins og glöggir hafa eflaust tekið eftir er ég hætt í bloggáskorun við hákon. Ég einfaldlega nenni ekki að koma heim eftir 8+ tíma vinnudag, fá mér að borða og eyða svo kvöldinu í örvæntinga leit að einhverju til að blogga um, nú þegar ég hef ekki séð sjónvarp (og þal. fréttir) í mánuð ca.

Hákon, ég játa mig sigraða, þú vinnur.

7 Comments:

At 26/4/07 00:06, Blogger Hákon said...

Veistu, ég er í sigurvímu.

Mér finnst samt svolítið súrt að þú hafir hætt við. Ég veit nefnilega nákvæmlega hvað þú átt við, því maður er oft gjörsamlega tómur þegar maður er sest niður við tölvuna.
Ég held samt að galdurinn sé að tileinka sér að skrifa eitthvað niður og þá um leið og maður byrjar kemst hugmyndaflugið á smá túr.
Svona á jákvæðari nótum þá veit ég um aðra bloggara sem voru með sambærilega bloggáskorun sem entist í 2 daga. Við náðum þó að minnsta kosti 4 dögum bæði, sem verður að teljast gott miðað við aldur og fyrri störf!

Ég mun hins vegar byrja skemmtilega bloggtilraun á morgun, ég mun láta þig vita hvað í henni felst ;)
Við skulum bara segja til bráðabirgða að hún felist í því sem megi finna í bloggum mínum síðustu eina og hálfu vikuna...

 
At 26/4/07 13:00, Anonymous Nafnlaus said...

Á að fá sér moggablogg?

 
At 26/4/07 22:34, Blogger Hákon said...

Já jafnvel!
Við fylgjumst spennt með...

 
At 30/4/07 15:56, Anonymous Nafnlaus said...

Ja hérna hér!

Ég hélt að þú værir löngu hætt að blogga, dett ég þá ekki inn á þessa fínu mola um hitt og þetta. Mjög ánægð með þig :)

Verð bara rétt að fá að koma því að (held ég hafi sagt þér frá þessu) að þú getur keypt þér ekkert smá frábært salt sem er mjög mikið lífrænt og allskonar á litinn fyrir litlar 8000 kr. !!!
Konurnar í vinnunni voru með þetta og sögðu mér að ég gæti líka bara keypt Maldon salt í Bónus, það er lífrænt salt fyrir fátæklinga....ég brosti bara blítt og sagði já en inní hausnum á mér ómaði NaCl, NaCl, NaCl, NaCl, NaCl...svo hljóp ég gargandi út! ;)

 
At 30/4/07 19:30, Anonymous Nafnlaus said...

Haha, en fyndið. Er fólkið sem vinnur mér þér ekki almennt meira og minna raunvísindamenntað?

 
At 2/5/07 10:40, Anonymous Nafnlaus said...

Jú slatti af þeim en þetta var skrifstofudeildin... ;)

 
At 8/5/07 19:25, Blogger Helga Dogg said...

Brilljant! :D Algjör snilld! Það er svo fyndið að heyra fólk tala um svona :P

Reyndar eru þessi "lífrænu" sölt oft bragðsterkari... en það er pottþétt útaf allskonar efnum (engin veit hvaða efni það eru þar sem þau hafa ekki komið inn á lab - því ef þau hefðu það þá væru þau ekki lengur lífræn) sem eru aukalega í saltinu...

 

Skrifa ummæli

<< Home