....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, apríl 18

Þessi færsla átti upphaflega að vera um fólk sem er á móti bólusetningum, en þegar ég var að lesa mér til sá ég svo skemmtileg rök fyrir því að kaupa "heilsusalt" að bólusetningarnar verða að fá að bíða betri tíma.

Dr. Mercola sem er til dæmis tilbúinn til að selja þér náttúrulegt salt, himalayan crystal salt sem hann fullyrðir að sé hreinasta salt í jörðinni.

Fyrir þá sem ekki þekkja til er borðsalt að mestu leiti natríumklóríð, NaCl. Hægt er að kaupa salt sem inniheldur líka kalíumklóríð, KCl (einhverjum datt í hug að natríum væri vont). Erlendis er salt oft joðbætt, til þess að koma í veg fyrir skjaldkirtilsauka, sérstaklega í löndum þar sem ekki er borðað mikið af fiskmeti. Og til þess að það sé allveg á hreinu eru frumefni ALLTAF eins, það er ekki í boði að vera með "frumefni á sínu náttúrulega formi" eins og maður heyrir stundum. Þar af leiðandi er NaCl alltaf eins, sama hvaðan það kemur.

Þar sem Dr. Mercola leyfir kóperingar af síðunni sinni ef það er ekki í gróðaskyni ætla ég að nýta mér það

If you want your body to function properly, you need holistic salt complete with all-natural elements. Today's common table salt has nothing in common with natural salt.
Your table salt is actually 97.5% sodium chloride and 2.5% chemicals such as moisture absorbents, and iodine. Dried at over 1,200 degrees Fahrenheit, the excessive heat alters the natural chemical structure of the salt.


Ég vísa á það sem ég sagði áðan um "náttúrulega" og "ónáttúrulega" saltið. Og ef náttúrulegt salt á ekkert sameiginlegt með venjulegu borðsalti þá vil ég endilega fá að vita hvað er í náttúrulega saltinu.

This is by far the purest salt available on earth and is absolutely uncontaminated with any toxins or pollutants.

Tékkuðu þeir á því?? Fyrst þetta salt er allveg óunnið finnst mér mjög ólíklegt að það sé svona hreint.

Together with pure spring water, Himalayan Crystal Salt offers all the natural elements exactly identical to the elements in your body -- the very same elements originally found existing in the "primal sea."

Þetta fannst mér bara fyndið.

1)Regulating the water content throughout your body.
2)Promoting a healthy pH balance in your cells, particularly your brain cells.
3)Promoting blood sugar health and helping to reduce the signs of aging.
4)Assisting in the generation of hydroelectric energy in cells in your body.
5)Absorption of food particles through your intestinal tract.
6)Supporting respiratory health.
7)Promoting sinus health.
8)Prevention of muscle cramps.
9)Promoting bone strength.
10)Regulating your sleep -- it naturally promotes sleep.
11)Supporting your libido.
12)Promoting vascular health.
13)In conjunction with water it is actually essential for the regulation of your blood pressure.

1) Salt bindur vatn í líkamanum og það er yfirleytt talið slæmt.
2) Salt inniheldur ekki prótónur eða efni sem bindur prótónur, og hefur þal. engin áhrif á pH gildi eins eða neins.
4) Allar jónir gera þetta, og þetta er ástæðan fyrir því að við þurfum á salti að halda.
8) Saltið innniheldur líklega kalíum, og skortur á kalíum veldur vöðvakrömpum. Því er auðvelt að koma í veg fyrir krampa með því að borða kalíumbætt salt. Fólk sem hefur drukkið of mikið kaffi og fengið skjálfta: Kaffineysla veldur kalíumskorti í líkamanum.
9) Kalkbætt?
10) Svefnlyf líka??
11) Styrkir lífskraftinn? Það er þessi kraftur sem sumir halda því fram að sé til og nota rökin "vísindamenn hafa kannski ekki uppgvötað allt (but you have...)", ekki satt? Einu sinni heyrði ég að það væri lífskrafturinn sem ylli sjávarföllum, en æ, það er víst þyngdaraflið.
12) Sjá svar 8)
3, 5, 6, 7, 13) Ábyggilega, en ábyggilega getur venjulegt salt þetta líka.


When your body tries to isolate the excess salt you typically expose it to, water molecules must surround the sodium chloride to break them up into sodium and chloride ions in order to help your body neutralize them. To accomplish this, water is taken from your cells in order to neutralize the unnatural sodium chloride.


Þetta er hárrétt, nema þetta gerist með öll jónísk efni. Svo tala þeir um gríðarlegu orkuna sem fer í að brjóta ólífræna natríumklóríðið í jónir sínar (lattice energy) en ahh, steingleyma vötnunarorkunni sem losnar þegar jónirnar eru umkringdar vatni. Ef það væri svona rosalega orkufrekt ferli að leysa upp salt í vatni myndi vatn kólna mjög mikið við að fá í sig smá salt. Hefur einhver orðið var við það?

Svo eru það auðvitað helstu eiginleika himalya saltsins:

Það geymir titringsorku efnanna (vegna einstakrar byggingar efnisins)
Það skynjar ekki segulsvið

Svo er það punkturinn yfir i-ið:
With the use of rigorous advertising, the salt industry is successful in convincing you there are actually health advantages to adding potentially toxic iodine and fluoride to salt. In addition, your table salt very often contains potentially dangerous preservatives. Calcium carbonate, magnesium carbonate, and aluminum hydroxide are often added to improve the ability of table salt to pour.

Í næsta kafla má svo finna þessa málsgrein:

The renowned Frezenius Institute in Europe analyzed the Himalayan Crystal Salt and proved that it has an amazing array of important trace minerals and elements including potassium, calcium and magnesium that help promote a healthy balance by maintaining fluids and replenishing your supply of electrolytes whenever you sweat heavily. (This salt does not supply iodide, a necessary nutrient.)

Eru menn ekki pínulítið að skjóta sig í fótinn?

2 Comments:

At 19/4/07 21:34, Blogger Hákon said...

Mér líst vel á þetta efnisval þitt. Það er á mörkunum að teljast sama viðfangsefnið en þetta er mjög snyrtilega gert engu að síður ;)
Bravó.
Já og til hamingju með nýju sílíkonpíkuna!

 
At 20/4/07 10:30, Anonymous Nafnlaus said...

Flott grein hjá þér Ester, meira svona :)

 

Skrifa ummæli

<< Home