....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, apríl 16

Í gærkvöldi horfði ég á heimildarmyndina "Modify", sem fjallar um svokallaðar "body modifications". Í huga flestra stendur það fyrir gatanir (piercings), tattoo, implants (plast-eða málmhlutum komið fyrir undir húðinni til að búa til mynstur, td. horn) og þess háttar tilfæringar. Þessi mynd opnaði augu mín fyrir þeirri staðreynd að body modification er svo miklu, miklu víðara hugtak. Hvað er hárlitum, ljós, megrun, vax og förðun annað en breytingar á upprunalegu útliti? Þetta fólk sem þarna kom fram, tattúverað frá toppi til táar (bókstaflega), allt sundurgatað og sætt vildi bara líta út eins og því finnst það líta vel út.
Þessi mynd eyddi mínum fordómum til útlits annarra, og þá ekki til tattúfólksins (mér hefur alltaf líkað það) heldur til fólksins sem aflitar sig, fer í ljós og svo framvegis.

Annars var það ekki það sem ég ætlaði að tala um, heldur þegar menn ganga talsvert lengra. Talsvert lengra, samkvæmt minni skilgreiningu er til dæmis þegar ákveðið er að eitt stykki hönd sé ekki viðeigandi og hún því fjarlægð (nullification). Án þess að fara út í geldingar og fjarlægingu kynfæra, bæði karla og kvenna. Maður spyr sig hvers vegna einstaklingur ákveður sjálfviljugur að fjarlægja hluta líkama síns. Einnig hef ég áhuga á að vita hvernig maður ætti að bera sig að, skildi maður allt í einu vilja gelda sig. Ég leyfi mér að efast um að maður banki uppá á skurðdeildinni og biðji um eitt stykki "type 3" umskurð án þess að vera lokaður inni í öðrum vistarverum spítalans til æviloka. Þá eru útlimirnir auðveldari. Mér skilst að það tíðkist að fá sér gott sár og malla í það eitt stykki sýkingu þangað til nauðsunlegt reynist að fjarlægja útliminn. Það hljóta samt að vera talsverð fræði á bak við það.

Mér finnst þetta merkilegt. Ég mæli með myndinni (ekki samt fyrir fólk sem þolir ekki skurðaðgerðir, lýtalækningaparturinn var ljótur), og fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér body modifications af ýmsum gerðum mæli ég með þessari wiki síðu.

3 Comments:

At 17/4/07 00:00, Blogger Hákon said...

Og það byrjar... ;)

 
At 17/4/07 16:13, Anonymous Nafnlaus said...

þetta var nú aldeilis gott blogg. það er spuring hvort þú haldir út í 2 vikur, ef þú verður uppiskroppa þá bara skal ég syngja fyrir þig og þá opnast hugurinn!!!

en annars var í Nip/tuck um mann sem vildi losna við fót, hann var allaf með hann bundinn hæl við rass og endaði með því að fóturinn var tekinn... honum bara fannst hann ekki eiga að vera!

 
At 17/4/07 23:52, Blogger Hákon said...

Og Nip/Tuck gefur náttúrulega ótrúlega góða innsýn í raunveruleg vandamál fólks...

Þar sem þetta varð á endanum svo langt komment ákvað ég að breyta því í blogg á mínu eigin bloggi. 2 í dag semsagt. Hah!

 

Skrifa ummæli

<< Home