Hegðun mannskepnunnar hefur löngum valdið heilabrotum og kenningasmíðum ýmissa góðra manna og kvenna, enda eru vitsmunir hennar og tifinningagreind talin bera af öðrum dýrum. Að minnska kosti af henni sjálfri.
Einn hæfileika skortir mannskepnuna þó (og jafnvel ýmsa aðra sem hún þó þykist hafa umfram önnur dýr, dæmi hver fyrir sig) og það er hæfileikinn til að sjá augljósu leiðina til að greiða úr vandamálum sínum. Sem dæmi má auðveldlega koma ár sinni betur fyrir borð fjárhagslega með því til dæmis að kaupa ekki 40" flatskjá á VISA-rað þegar maður á í erfiðleikum með afborganirnar á íbúðinni nú þegar, nú eða sleppa því að fara á "stælinn" í hádeginu og borða afgangana síðan í gær.
Síðan er það fólkið með "lífsstílssjúkdómana" svokölluðu; offitu, síþreytu, stress, áunna sykursýki osfr. (lífstílssjúkdóma í sumum tilfellum, ekki öllum). Flest þessi einkenni er auðvelt að losna við með, eins og ALLIR vita, reglulegri hreyfingu, hollum mat og reglulegum málsverðum og góðum nætursvefni.
En í stað þess að fara eftir þessum frekar einföldu leiðbeiningum leitar fólk nú í æ meira mæli á vit kraftaverkalækninga. Fólk étur pillur, drekkur seyði, borðar lífrænt og guð má vita hvað fleira í þeirri trú um að það muni vera allra meina bót.
Nú er til dæmis hægt að fara á "detoxhótel" í Póllandi (www.detox.is) þar sem boðið er upp á tveggja vikna dvöl á hóteli þar sem maður fær lífrænt ræktað grænmeti og ávexti að borða og fær að stunda mikla útiveru og leikfimi. Einnig er innifalinn læknisskoðum og kennsla í áhrifamætti matar. Þetta allt má fá á litlar 120.000 krónur. Allt er þetta gott og blessað, en er ekki miklu gáfulegra að taka sér tveggja vikna frí í vinnunni, fara með fjölskyldunni upp í bústað (hægt að leigja hjá flestum stéttarfélögun), borða hollan mat og fara út að labba? Síðan, eftir að heim er komið er hægt að halda áfram að borða hollt og fara út að labba nokkrum sinnum í viku. Og, gott fólk, það er ókeypis.
Margt fólk nú til dags er svo upptekið við að vera upptekið að það étur upp allt sem það heyrir, les í fjölmiðlum og sér í sjónvarpinu og á netinu. Aspartamfárið er til dæmis gott dæmi um vitleysu sem er búin að vinda all verulega upp á sig, MSG hræðslan sem greip um sig um árið, æðið fyrir lífrænt ræktuðu (ég skora á fólkið sem aðhyllist það að kynna sér upphaflegu hugmyndina og skoða samanburð á lífrænni og hefðbundinni ræktun Í VIÐURKENNDUM VÍSINDATÍMARITUM). Svo ég tali nú ekki um blómadropana, áruhreinunarspreyið og ósonkremið.
Hættið að láta loddara stela af ykkur peningunum.

4 Comments:
Djöfull er ég á leiðinni á detox hótelið í sumar!
Er það ekki annars eitthvað sem ég hef alveg efni á meðan ég er á námslánum?
Síðan hefur áruhreinsispreyið mitt virkað mjög vel þakka þér fyrir! Þegar ég nota það með blómadropunum, vetnisperoxíðinu og ósonkreminu er ég alveg í vímu tímunum saman!
Þess ber þó að geta að C-vítamín er allra meina bót. Rannsóknir í Danmörku hafa sýnt fram á það.
Ok hér er staðan kl. 21:40, á miðvikudegi (dagur 3):
Ester Hákon
Dagur 1 check check
Dagur 2 check double check
Dagur 3 ? check
Arg þetta birtist ekki rétt!
Ég ætla að fá mér nýja gosdrykkinn með aspartam og MSG bragði til að slá á vonbrigðin, nammi namm.
Skrifa ummæli
<< Home