....Lyfleysan....

bull og vitleysa

laugardagur, apríl 21

Það lítur út fyrir að við Hákon höfum látið áfengi og skemmtanalíf leiða okkur í freistni í gær, og þar af leiðandi erum við búin að tapa í bloggáskoruninni miklu.

Stjórnvöldum í Kanada er greinilega umhugað um orkumál í landinu sínu. Þegar ég bjó það dundu á manni í sífellu auglýsingar í sjónvarpinu um hvað hægt væri að sjá mörgum heimilum fyrir rafmagni ef menn slökktu ljósin á eftir sér og hegðuðu sér almennt á orkusparandi hátt. Einnig var ákveðið að breyta klukkunni á sumartíma þremur vikum fyrr en venjulega, og átti það að skila sér í minni mengun og fjárhagslegum ávinningi. Ég er reyndar ekki ennþá búin að átta mig á því hvernig það á að gerast, en svona er þetta, maður verður að treysta því að fólkið sem sér um svona viti hvað það syngur.
Nýjasta er að frá og með 2012 verður sala á hefðbundnum ljósaperum, eða glóðarperum, bönnuð í Ontariofylki. Í staðinn á að selja flúrperur, sem nota 75% minni orku en glóðarperur. Stjórnvöldum reiknast til að hægt verði að sjá 600.000 heimilum fyrir rafmagni með þessarri "auka" orku, auk þess sem losum gróðurhúsalofttegunda minkar verulega.

Íslensk stjórnvöld ættu kannski að taka sér þau kanadísku til fyrirmyndar, og þá er kannski hægt að sleppa nokkrum virkjunum eða svo?

1 Comments:

At 22/4/07 20:35, Blogger Hákon said...

Já þetta er agalegt.

Til að bæta upp fyrir þetta bloggaði ég tvisvar í dag. Þannig að í heildina er ég kominn með 7 bloggfærslur á þessum 7 dögum. Þetta er brot á reglum en viðleitni engu að síður ;)

Eigum við ekki bara að klára áskorunina með sóma eins og ekkert hafi í skorist?

 

Skrifa ummæli

<< Home