Íslensk stjónrvöld hafa loksins ákveðið að fara að fordæmi noskra stjórnvalda og ætla að taka upp "eðlileg samskipti" við þjóðstjórn Palestínu.
Fyrir þá sem ekki þekkja til málsins þá voru haldnar kosningar í Palestínu í janúar 2006, þar sem Hamas hreyfingin náði meirihluta. Hamas hefur verið herskárri en Fatah hreyfingin, og til dæmis neitað að viðurkenna tilvist Ísraelríkis. Þetta kom að sjálfsögðu eins og blaut tuska framan í Ísraelsstjórn og ákveðið var að grípa til "hertra aðgerða" sem Bandaríkin studdu. Sett var á viðskiptabann og peningaflæði stöðvað, til dæmis var sending 4500$ sending félagsins Íslands-Palestínu til Öryrkjabandalags Palestínu stöðvuð í New York síðasta sumar. Ég veit ekki hvort hún komst einherntíma til skila. Þessar hertu aðgerðir fálust auðvitað líka í auknum hernaðaraðgerðum; byggingu aðskilnaðarmúrsins var hraðað og gæsla hert, vegna "aukinnar hryðjuverkaógnar".
Því miður fylgdu stjórnvöld flestra Evrópuríkja, þar á meðal Íslands þessarri stefnu. Þvert á yfirlýsta stefnu sem samþykkt var samhljóða á alþingi árið 1989 um að viðurkenna bæri sjálfsákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar og tilvistarrétt Ísraelsríkis.
Í síðasta mánuði gáfu norsk stjórnvöld út þá yfirlýsingu að þau hyggðust hefja aftur samskipti við palestísku þjóðstjórnina, Svíar fylgdu í kjölfarið og nú Íslendingar.
Ef þetta er eitt að kosningabrögðunum, þá er þetta að minnsta kosti gott kosningabragð.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home